Oroszország gyalázatos háborút folytat Ukrajna ellen.     Állj ki Ukrajnával!
  • Daði Freyr

    Hvað með það?

Ossza meg
Betűméret
Eredeti dalszöveg

Hvað með það? szöveg

Það er skrýtið að segja,
því ég var að sjá þig í fyrsta sinn.
En samt einhvern veginn veit ég,
að þetta eru örlögin.
 
Er þú heilsar mér,
ég bara stari dreyminn.
Ekki horfa á mig,
ég verð allt of feiminn.
 
Ég held ég hafi aldrei fundið þessa tilfinningu fyrr en núna.
Ég veit þú varst að hitta mig og ég var líka að hitta þig og hvað með það?
 
Ég segi hæ og tíminn stendur í stað,
er búinn að gleyma hvernig samræður virka.
Þú segir hæ aftur og ég ætla að opna munninn,
en þú stoppar mig um leið og segir:
 
Ég veit alveg hvað þú ert að ganga í gegnum,
því ég finn það líka.
Það er ekkert gaman hér hvort sem er.
Eigum við að kíkja heim?
 
Það er skrýtið að segja,
Því ég var að sjá þig í fyrsta sinn.
En samt einhvern veginn veit ég
að þetta eru örlögin.
 
Ég held ég hafi aldrei fundið þessa tilfinningu fyrr en núna.
Ég veit þú varst að hitta mig og ég var líka að hitta þig og hvað með það?
 
Ég held ég hafi aldrei fundið þessa tilfinningu fyrr en núna.
Ég veit þú varst að hitta mig og ég var líka að hitta þig og hvað með það?
 

 

"Hvað með það?" fordításai
Daði Freyr: Top 3
Hozzászólások