Ef ég gæti gefið þér
Sálina úr sjálfum mér
Er það auðsótt mál
Ef þú þiggur það
Himinn, tungl og sólina
Allan geiminn, jörðina
Tendrað hjá þér bál
Ef þú þiggur það
Gæti verið að þú sjáir ei mig
Í för með þér?
Þú ert mitt kraftaverk
Af Guði gerður, undravert
Og birtist mér sem yndisfögur sýn
Bragð af himni, ljúft og sætt
Á allan veg gast líf mitt bætt
Um alla tíð ég þakka það að þú komst til mín
Fólkið kemur, fólkið fer
Enginn veit hvað lífið ber
En ég verð hér
Ef þú þiggur það
Hvert sem skrefin leiða þig
Munt þú ætíð hafa mig
Ég fer með þér
Ef þú þiggur það
En gæti verið að þú sjáir ei mig
Í för með þér?
Þú ert mitt kraftaverk
Af Guði gerður, undravert
Og birtist mér sem yndisfögur sýn
Bragð af himni, ljúft og sætt
Á allan veg gast líf mitt bætt
Um alla tíð ég þakka það að þú komst til mín
Bragð af himni, ljúft og sætt
Á allan veg gast líf mitt bætt
Um alla tíð ég þakka það að þú komst til mín
Já, um alla tíð ég þakka það að þú komst til mín