Russia is waging a disgraceful war on Ukraine.     Ukrayna'nın Yanında Olun!
  • Sálin hans Jóns míns

    Hjá þér • Garg

Paylaşmak
Yazı tipi boyutu
Orijinal

Hjá þér sözleri

Þegar kviknar á deginum
og í lífinu ljós,
þegar myrkrið hörfar frá mér.
Þá er eitthvað sem hrífur mig
líkt og útsprungin rós.
Þá vil ég vera hjá þér.
 
Þegar geng ég í sólinni
mitt um hábjartan dag,
litafegurð blasir við mér.
Þegar heimurinn heillar mig
líkt og töfrandi lag
þá vil ég vera hjá þér.
 
Ég vil bæði lifa og vona,
ég vil brenna upp af ást,
ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.
Meðan leikur allt í lyndi
líka þegar illa fer,
meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér.
 
Meðan skuggarnir stækka og
ýta húminu að,
gamall máninn bærir á sér,
vil ég eiga andartak
inni á rólegum stað
þá vil ég vera hjá þér.
 
Ég vil bæði lif'og vona,
ég vil brenna upp af ást,
ég vil lifa með þér svona,
ég vil gleðjast eða þjást.
Meðan leikur allt í lyndi
líka þegar illa fer,
meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér.
 
Ooh, meðan leikur allt í lyndi
líka þegar illa fer,
meðan lífið heldur áfram
þá vil ég vera hjá þér.
 
Þegar slokknar á deginum
yfirþyrmandi nótt
stormar fyrir stjarnanna her.
En það bítur mig ekkert á
og ég sef vært og rótt
ef þú vilt vera hjá mér.
Þá vil ég vera hjá þér.
 

 

Sálin hans Jóns míns: En İyi 3
Yorumlar