Oroszország gyalázatos háborút folytat Ukrajna ellen.     Állj ki Ukrajnával!
  • Land og synir

    Lífið er yndislegt

Ossza meg
Betűméret
Eredeti dalszöveg

Lífið er yndislegt szöveg

Á þessu ferðalagi fylgjumst við að,
við eigum
örlítinn vonarneista fyrir hvort annað.
Í ljósu mánaskini vel ég mér stund
og segi:
„Ég myndi klífa hæstu hæðir fyrir þig.“
 
Ég væri ekkert án þín
myrkrið hverfur því að
 
lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Blikandi stjörnur skína himninum á
hún svarar:
„Ég trúi varla því sem augu mín sjá,“
og segir:
„Ég gef þér hjarta mitt þá skilyrðislaust.
Ég veit að
þú myndir klífa hæstu hæðir fyrir mig.“
 
Ég væri ekkert án þín.
Myrkrið hverfur því að
 
lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér.
 
Nóttin hún færist nær.
Hér við eigum að vera.
Núna ekkert okkur stöðvað fær,
undir stjörnusalnum
inní Herjólfsdalnum.
 
Lífið er yndislegt, sjáðu,
það er rétt að byrja hér.
Lífið er yndislegt með þér...
 

 

"Lífið er yndislegt" fordításai
Hozzászólások