Russia is waging a disgraceful war on Ukraine.     우크라이나와 함께하세요!
  • Encanto (OST)

    Bið bara eftir undrinu [Waiting On A Miracle]

    피처링 아티스트: Salka Sól Eyfeld
공유하다
글꼴 크기
원래 가사

Bið bara eftir undrinu [Waiting On A Miracle] lyrics

[MIRABEL]
 
Vertu ekki reið né raunaleg
Vertu ekki dauf né dapurleg
Hey, ég tilheyri ennþá fjölskyldu Madrígal
Hef það fínt er bara svo fín
Stend til hlés meðan stjarnan þín skín
En ekki mín, ekki mín
 
Get ei haggað fjöllum
Get ei látið blómstra blóm
Þoli ei lengur þennan refsidóm
Bíð bara eftir undrinu
 
Get ei læknað sárin
Get hvorki stöðvað fellibyl né morgunregn
Þessi nístandi sársauki er mér um megn
Bið og vona að komi kraftaverk, já, kraftaverk
 
Alein feta minn veg
Þrái hagstæðan byr
Eins og ég sé við þær dyr þrái að ég skíni
Eins og þið öll hin
 
Tilbreytingu ég þarf
Tækifæri ég þarf
Veit að ekki ég get staðið til hlés
Reyndu að sjá, reyndu að sjá, reyndu að sjá
 
Ég myndi flytja fjöllin
Rækta tré og blómin hér
Vill ekki einhver segja mér hvert ég þá fer
Og ég bið það verði kraftaverk, smá kraftaverk
 
Ég myndi lækna sárin
Sýna ættinni nýja hlið
Hver í raun ég er svo seg mér, ég bið
Ég er þreytt að bíða eftir undrinu, svo hér er ég
Ég er viljug
 
Já, ég er verðug
Ég er þolinmóð, staðföst og stöðug
Gef mér grið þú sem blessaðir okkur hér fyrr
Er þú gafst okkur kraftaverk
 
Er ég of sein fyrir kraftaverk?
 

 

코멘트