Russia is waging a disgraceful war on Ukraine.     Sta achter Oekraïne!
  • Moana (OST)

    Hér Hjá Þér [Where You Are] • Where You Are

    Gastartiest: Hjálmar Hjálmarsson, Hanna María Karlsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Agla Bríet Einarsdóttir, Lára Björk Hall
Deel
Lettertypegrootte
Originele teksten

Hér Hjá Þér [Where You Are] songtekst

Vaiana
Vík frá, vík frá
Vaiana mín, vittu nú
Að þorpið þitt Motunui er allt sem þarf
 
Þar dansarar æfa dans
Þeir dansa við gamalt lag
Hver vill fá nýtt lag? Það gamla er allt sem þarf
 
Þessi hefð er okkar hugsjón
Og Vaiana, það þarf að gera margt
Ei hrasa um taró-rót. Það er allt sem þarf
 
Hjá okkur er öllu deilt
Við hlæjum og fléttum körfur
Og fiskimenn snúa heim á ný
 
Ég þangað sný
 
Æ, farðu ei
Vaiana, hald þig á jörðu
Og fólkið þarf höfðingja og þú ert hér
 
Dag einn, mín mey
Þú lítur í kringum þig og finnur að hamingjan er hér hjá þér
 
Lít á kókoshnetuna
Ha, hvað?
Og líttu á tréð
Við notum allt af hnetunni. Það er allt sem þarf
 
Við hnýtum netin úr trefjum
Og mjólkin er mjúk og sæt
Úr laufum eldinn við hefjum
Og eldum þar kjötið vænt
 
Lít á kókoshnetuna
Og stofinn og lauf
Og eyjan gefur allt sem þarf
 
Og enginn fer
 
Við erum hér
Svo örugg í allsnægtunum
Er lítum við fram á veginn. Ertu hér
 
Þú ert hjá mér
Með tímanum mun þér lærast
Þú finnur hamingjuna hér hjá þér
 
Ég elska að dansa við hafið
Við öldur og útsogið
Og vatnið er prakkari. Ha!
Ha! Það er ansi óhlýðið
 
Og fólkinu finnst ég galin
Að slæmt sé það afspurnar
Er lærirðu hvað þér líkar vertu þar
 
Þú ert þíns föður dóttir
Til skylduverka kvödd
Tak mið af því en samt mundu þú átt þína innri rödd
Og ef sú rödd fer að hvísla
Um stjörnu sem lýsir skært
Vaiana, sú rödd hún er sú sem þú ert
 
Við hnýtum netin úr trefjum
Og inn í er mjólkin sæt
(Og mjólkin er mjúk og sæt)
Og sönginn í kór við tjáum
(Úr laufum eldinn við hefjum)
Svo getum við munna fætt
(Og eldum þar kjötið vænt)
 
Og fólkið á okkur trúir
Já, það hefur trú
Og eyjan gefur allt sem þarf
Og enginn fer
 
Svo hér verð ég
Mitt heimili, fólkið mitt hjá mér
Ég hugsa um morgundaginn
Erum hér
 
Ég verð ei treg
Því fólkið vísar mér veginn
Horfum til framtíðar saman, hér með mér
Því allir vegir þeir enda
Hér með þér
Þú finnur hamingjuna
Hér hjá þér
 

 

Vertalingen van "Hér Hjá Þér [Where ..."
Gegeven reacties