Russia is waging a disgraceful war on Ukraine.     Stai cu Ucraina!
  • Hera Björk

    Eitt andartak

Acțiune
Marimea fontului
Versuri originale

Eitt andartak versuri

Hvað heldur í mig?
Hvaða ótti læðist inn?
Finn hvernig efinn flæðir inn í huga minn.
 
Ég veit þú stendur með mér,
ég veit það er ég sef,
ég veit að það er ég sem þarf að taka næsta skref.
 
Innra með mér stöðugt
og gafst mér sjaldan frið.
Þú varst alltaf mér hjá,
þar til ég fór að sjá
að nú get ég tekið við.
 
Eitt lítið andartak,
ég heyri vængjaþyt.
Lítið andartak
sé lífið breyta um lit.
Eitt lítið augnablik
og það opnast nýjar dyr.
Nú vel ég nýja leið.
 
Stíg inn í ljósið
finn að birtan læðist inn.
Finn hvernig orkan flæðir inn í huga minn.
 
Nú sé ég allan heiminn,
nú sé ég hvert ég fer
og nú finn ég hvernig hjartað hamast um í brjósti mér.
 
Innra með mér varstu
og gafst mér engin grið.
Þú varst alltaf mér hjá
þar til ég fór að sjá
og nú hef ég tekið við.
 
Eitt lítið andartak,
ég heyri vængjaþyt.
Lítið andartak
sé lífið breyta um lit.
Eitt lítið augnablik
og það opnast nýjar dyr.
Nú vel ég nýja leið.
 
Nýja leið!
Ég fer nýja leið
og sé lífið breyta um lit.
Ég gríp mitt augnablik,
ég sé opnast mínar dyr.
Ég hef valið, valið, valið mína leið.
 

 

Comentarii