✕
Nyelv:
Izlandi
Album:
Spillt
Stúlkan
Stúlkan kyssti á stein
og hún kyssti einn bíl
Stúlkan kyssti á rúðu
og svo kyssti hún jörðina
þar sem hún lá og starði
og taldi flugvélar
Veit ekki af hverju
ég veit ekki af hverju
Stúlkan faðmaði tré
og hún faðmaði hús
Stúlkan faðmaði bók
og hún faðmaði fötin sín
en hún faðmaði aldrei – aldrei fólkið sitt
Veit ekki af hverju
ég veit ekki af hverju
Nei – ég veit ekki af hverju
Nei – ég veit ekki af hverju
Meira – viltu fá að heyra meira
um stúlkuna og fleira
eitthvað skemmtilegt og skondið – viltu?
Meira – viltu fá að heyra meira?
Leggðu þá við eyra
eitthvað skemmtilegt og skondið sagði ég
Enginn vissi hvað hún hugsaði
en flestir vildu vita af hverju
Stúlkan horfði út á haf
og hún horfði inn í blóm
Stúlkan horfði á bát
og hún horfði‘ upp í himininn
en hún horfir aldrei – aldrei í augun þín
veit ekki af hverju
Ég veit ekki af hverju
Nei – veit ekki af hverju



