✕
アイスランド語
アイスランド語
Lítill fugl á laufgum teigi
losar blund á mosasæng.
Heilsar glaður heiðum degi,
hristir silfurdögg af væng.
Flýgur upp í himinheiðið,
hefir geislastraum í fang,
siglir morgunsvala leiðið,
sest á háan klettadrang.
Þykist öðrum þröstum meiri,
Þenur brjóst og sperrir stél.
Vill að allur heimur heyri
hvað hann syngur listavel.
Skín úr augum skáldsins gleði,
skelfur rödd við ljóðin ný,
þó að allir þrestir kveði
þetta sama dirrindí.
Lítill fuglinn ljóða vildi
listagrag um vor og ást.
Undarlegt að enginn skyldi
að því snilldarverki dást.
コメント
msdte

Lag: Sigfús Halldórsson
Texti: Örn Arnarson