• Frozen 2 (OST)

    Að breyta rétt [The Next Right Thing]

    Featuring artist: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Favorites
Share
Font Size
Original

Að breyta rétt [The Next Right Thing] lyrics

Ég hef séð það svart, en aldrei svo
Þetta' er tómt, þetta' er dofið, þetta' er kalt
Nú lífi mínu' er lokið, öll ljósin slökkt
Halló myrkur, ég gef mig þér á vald
 
Ég elti þig um allt, já, alla tíð
En þú fórst burt á stað sem finn ég ei
Sú sorg er svo ógnarþung, hún togar mig
En í huga mér rödd ein hvíslar, þei
 
Engin von, þú ert vilt
En þér samt er skylt
Næst að breyta rétt
 
Kemur dagur eftir þessa nótt?
Veit ei meir hvað er sannleikur nú
Ég týnt hef öllum áttum ég er svo ein
Og eina leiðarstjarnan mín varst þú
 
Hvernig hef ég mig þá
upp, ef þú ert mér ekki hjá
En breyttu bara rétt
Taktu skref, annað til
Allt sem get ég og vil er það
að breyta rétt
 
Lít ég of langt fram á veg
Þetta' er allt um hug mér þvert
Ég hugsa' um næsta andartak
Næsta skref, næsta val
Það er allt sem ég get gert
 
Svo ég fer þessa nótt
Reyni' að finna ljósið mjótt
Og svo ég breyti rétt
 
Með nýjan dag
Hvað kemur þá?
Það er ljóst að allt er breytt
Og verður aldrei samt að sjá
 
Og ég hef mitt val
Þig heyra skal
Og svo ég breyti rétt
 

 

Comments
BennyBenJBennyBenJ
   Wed, 22/07/2020 - 22:08

Hi,

A little mistake here:

En í huga mér rödd ein hvíslar þey --> En í huga mér rödd ein hvíslar þei

Thanks