✕
Limba:
Islandeză
Jólakötturinn
Þið kannizt við jólaköttinn
Sá köttur var griðarstór
Fólk vissi'ekki hvaðan hann kom
Eða hvert hann fór
Hann glennti upp glyrnurnar sinar
Glóandi báðar tvær
Það var ekki heiglum hent
Að horfa í þær
Kamparnir beittir sem broddar
Upp úr bakinu kryppna há
Og klærnar à loðinni löpp
Var ljótt að sjá
Hann veifaði stélinu sterka
Hann stökk og hann klóraði' og blés
Og var ýmist uppi í dal
Eða úti' um nes
Hann sveimaði, soltinn og grimmur
Í sárköldum jólasnæ
Og vakti í hjörtunum hroll
Á hverjum bæ
Ef mjálmað var aumlega úti
Var ólukkan samstundis vís
Allir vissu' að hann veiddi menn
En vildi ekki mýs
Þið kannizt við jólaköttinn
You can thank submitter by pressing this button
Log in or sign up to add a comment.





