• Aladdin (OST)

    Nýr Heimur [A Whole New World] • Aladdin: Original Motion Picture Soundtrack (Icelandic)

Favorites
Share
Font Size
Original

Nýr Heimur [A Whole New World] lyrics

Þetta er ótrúleg för
Jörðin breytist í myndir,
Þú ert ást mín og yndi
Þú ert afskaplega sæt
 
Sætust blómin þú færð
Og mér finnst að mig dreymi.
En nú vöktum við heiminn
Þessi veröld er ágæt.
 
Við höldum vörð
Og nú fer töfrateppið hátt
Nú förum við á sveim
Um nýjan heim
Og fiðring fæ ég í mig
 
Já, höldum vörð
Svo dásamleg er þessi jörð
Og er ég ferðast hér
Ég alsæl er
Og ávallt vil ég halda vörð með þér.
 
Ég vil líka halda vörð mér þér.
 
Fiðring í mig ég fæ,
Indælt er hvað við svífum
Er við háloftin klifum
Upp í stjörnubjartan geim
Við höldum vörð
 
Meir' að skoða þú færð
 
En ekkert jafnast á við þig
þá mig sjálfan þér gef ég.
 
Við fljúgum út um allt, mér finnst það snjallt
Ef þú ferð frá mér verður út um mig
 
Já, höldum vörð
Þetta er ótrúlegt allt.
Við fljúgum inn í himna sjö.
 
Enga óvini hef ég.
 
Þett' er hreint ævintýr'
Og heimur nýr
Um hann skulum halda vörð við tvö.
 
Við höldum vörð,
 
Já, höldum vörð.
 
Ég treyst á þig
 
Ég treyst' á þig
 
Hratt hjartað slær
 
Þú ert frábær
 
Og þú átt mig.
 

 

Comments